Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Aðalfundur BHM haldinn 21. maí

Дата публикации: 22-05-2026 00:00:00

Aðalfundur BHM 2026 fór fram í gær á Hilton Reykjavík Nordica þar sem fulltrúar aðildarfélaga komu saman og fóru yfir helstu málefni bandalagsins.

Основное содержимое страницы с новостью.

22. maí 2026

Aðalfundur BHM 2026 fór fram í gær á Hilton Reykjavík Nordica þar sem fulltrúar aðildarfélaga komu saman og fóru yfir helstu málefni bandalagsins.

Pála Hallgrímsdóttir
Kynningarstjóri

Ljósmynd: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM og Gunnlaugur Briem, varaformaður BHM.

Samþykktar voru lagabreytingar sem breyta fyrirkomulagi aðalfunda og stefnumótunarþings BHM. Í stað aðalfunda árlega verður haldið veglegt BHM þing á þriggja ára fresti og einfaldari aðalfundir þess á milli. Þá voru samþykkt viðmið um þjónustu og hagsmunagæslu aðildarfélaga, sem miða að því að tryggja félagsfólki á hverjum tíma vandaða þjónustu um hvaðeina er lýtur að kjara- og réttindamálum.

Á fundinum var kynnt vegleg ársskýrsla, sem gefur góða yfirsýn yfir fjölbreytta starfsemi bandalagsins starfsárið 2025-2026. Skýrsluna má skoða HÉR.

Ný stjórn BHM fyrir starfsárið 2026-2027. Fv. Ingólfur Sveinsson, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Freyja Valsdóttir, frá FL - Félagi lífeindafræðinga, Svava S. Steinarsdóttir, FÍN - Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Sigrún Einarsdóttir, VISKU, Íris Davíðsdóttir, Félagi háskólakennara, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Gunnlaugur Briem, varaformaður BHM og Kári Kristinsson, frá Félagi prófessora. Á myndina vantar Gunnar Hrafnsson, Félag íslenskra tónlistarmanna.
Tvær ályktanir voru samþykktar á fundinum

Annars vegar varðandi Menntasjóð námsmanna og hins vegar um fyrirhugað afnám áminningarskyldu úr lögum um opinbera starfsmenn:

Ályktun um afnám áminningaskyldu

Aðalfundur BHM árið 2026 lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu gagnvart starfsmönnum ríkisins.

Fundurinn gagnrýnir skort á samráði sem hefur einkennt undirbúning málsins og fer fram á að svo veigamiklar breytingar á réttindum opinberra starfsmanna verði ekki gerðar án raunverulegs samráðs við stéttarfélög og heildarsamtök launafólks. Fundurinn telur frumvarpið óskýrt og að það auki hættu á ómálefnalegum uppsögnum, verði það að lögum, auk þess sem það mun auka óvissu um réttarstöðu starfsfólks ríkisins.

Aðalfundur BHM skorar á Alþingi að hafna frumvarpinu í núverandi mynd og hvetur stjórnvöld til að hefja þess í stað samráð við stéttarfélög og heildarsamtök launafólks um fyrirkomulag þessara mála til framtíðar með það að markmiði að tryggja að réttindi og réttaröryggi opinberra starfsmanna verði áfram virt.

Ályktun um Menntasjóð námsmanna

Aðalfundur BHM 2026 lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun íslenska námslánakerfisins og þeirri staðreynd að sífellt færri námsmenn taki námslán hjá Menntasjóði námsmanna í kjölfar þess að vextir hafa margfaldast og lánakjör versnað til muna. Þróunin gengur gegn upphaflegum markmiðum kerfisins um jöfn tækifæri og jafnan rétt til háskólanáms óháð efnahag, búsetu eða félagslegum aðstæðum.

Aðalfundur bandalagsins telur mikilvægt að stjórnvöld efli námslánakerfið á ný og tryggi að fólk geti sótt sér menntun og endurmenntun án þess að efnahagur eða fjölskylduaðstæður séu þar hindrun.

Svipmyndir frá fundinum

Að loknum fundarstörfum gafst tækifæri til að gleðjast í góðum félagsskap og fagna vel heppnuðu starfsári BHM.

Tengdar færslur

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Fréttabréf BHM - júní 20260008-06-2026
2Þjónustuver BHM lokað vegna aðalfundar0220-05-2026
3Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Þar til allir eru öruggir0516-06-2026
4קריקטורה יומית | 6 ביולי 20260005-07-2026
5קריקטורה יומית | 5 ביולי 20260004-07-2026
6Víkend Híradó – 2026.06.30.0030-06-2026
7קריקטורה יומית | 13 ביולי 20260012-07-2026
8קריקטורה יומית | 14 ביולי 20260013-07-2026
9Boka in datumen för Ediel- och avräkningskonferensen 20260517-04-2026
10Víkend Híradó – 2026.07.03.0003-07-2026

Классификация: Культура. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: www.bhm.is.