Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Evrópa er næststærsti markaður heims fyrir kókaín

Дата публикации: 26-06-2026 09:55:26

Fíkniefni. Kókaín. Kannabis. Hvar stendur Evrópa á heimskorti fíkniefnaneyslu? Heimsskýrsla um fíkniefni 2026 frá Fíkniefna- og glæpa skrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNODC), sem gefin var út í dag, varpar ljósi á málið. Skýrslan leiðir í ljós að Evrópubúar hafa snúið sér í auknum mæli að kókaíni, amfetamíni – þar á meðal e-töflum – og kannabisi, vinsælasta […]
The post Evrópa er næststærsti markaður heims fyrir kókaín appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Kókaín.Kókaín. Mynd: Alexander Grey / Unsplash

Fíkniefni. Kókaín. Kannabis. Hvar stendur Evrópa á heimskorti fíkniefnaneyslu? Heimsskýrsla um fíkniefni 2026 frá Fíkniefna- og glæpa skrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNODC), sem gefin var út í dag, varpar ljósi á málið.

Skýrslan leiðir í ljós að Evrópubúar hafa snúið sér í auknum mæli að kókaíni, amfetamíni – þar á meðal e-töflum – og kannabisi, vinsælasta fíkniefni heims.

Frá stóru höfnunum við Norðursjó til smærri hafna í Suður-Evrópu

Vestur- og Mið-Evrópa er næststærsti kókaínmarkaður heims, á eftir Norður-Ameríku.

Neysla þar hefur aukist verulega, sérstaklega frá árinu 2015. Á árunum 2014 til 2023 sjöfaldaðist magn kókaíns sem lagt var hald á í Vestur- og Mið-Evrópu.


Neysla í Vestur- og Mið-Evrópu hefur aukist verulega, sérstaklega frá árinu 2015. Mynd: Colin Davis/Unsplash

Aðferðir smyglaranna breyttust árið 2024: í stað stórra sendinga, oft falinna í ávaxtagámum frá Rómönsku Ameríku sem fóru um stórar hafnir við Norðursjó (Antwerpen, Rotterdam), færðist smyglið til suðvesturhluta Evrópu um smærri hafnir.

Á undanförnum árum hefur hluti kókaínsins einnig borist til Austur-Evrópu.

Evrópa stendur fyrir nærri fjórðungi af kókaínneyslu heimsins

Árið 2024 áætlar UNODC að 5,5 milljónir manna í Evrópu noti „kók“, sem er 22% af neytendum á heimsvísu.

Gögn um meðferð vegna vímuefnaneyslu benda til aukningar á kvillum sem tengjast neyslu á „krakk“-kókaíni í Vestur- og Mið-Evrópu.

Fíkniefni Fíkniefni. Mynd: Alinson Torres/Unsplash

Gera má ráð fyrir að kókaín verði áfram vandamál í Evrópu, þar sem á heimsvísu gæti aukning framboðs fljótlega farið fram úr eftirspurn.

Framleiðsla á þessu fíkniefni, sem unnið er úr kókablöðum, hefur meira en fjórfaldast á síðustu 10 árum og er áætlað að hún nemi 4.000 tonnum (í hreinu formi), vegna aukinnar framleiðni og stærri ræktunarsvæða.

Amfetamín, næstalgengasta örvandi efnið

Amfetamín er næstalgengasta örvandi efnið í Evrópu á eftir kókaíni.

Vestur- og Mið-Evrópa er miðstöð fyrir smygl á tilbúnum fíkniefnum, sérstaklega e-töflum og amfetamíni.

Evrópa hefur færst frá smáframleiðslu á staðnum yfir í rannsóknarstofur í fleiri löndum, þar sem sumar starfa í stórum stíl.

Vestur- og Mið-Evrópa er áfram stór neytendamarkaður fyrir e-töflur. Skólpgreiningar benda til aukinnar notkunar á ketamíni, sem er öflugt ofskynjunarvaldandi svæfingarlyf.

Í Austur-Evrópu er hæsta tíðni sprautufíkla í heiminum, eða 1,7 milljónir manna. Meðal þeirra er tíðni HIV/alnæmis 25,7% og tíðni lifrarbólgu nær 53%.

Kannabis.Kannabis. Mynd: Wesley Gibbs/Unsplash Kannabis, vinsælasta fíkniefnið

Mest af því kannabisi sem neytt er í Evrópu er framleitt á staðnum og er það orðið algengasta fíkniefnið meðal fólks sem fer í sína fyrstu fíknimeðferð (40% sjúklinga).

Á heimsvísu hefur fjöldi fólks sem notar kannabis aukist um 40% á síðasta áratug. Nærri 6% íbúa Evrópu nota það.

Sjá einnnig „Stríðið gegn fíkniefnum er skaðlegt og óskilvirkt,“ hér. 

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Hitabylgja: neyðarástand í heilbrigðismálum á heimsvísu-5724-06-2026
2Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar0508-07-2026
3Afganistan: ein stærsta flóttamannakreppu heims0708-07-2026
4Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan-5719-06-2026
5Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum0529-06-2026
6Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs-5717-06-2026
7Tröllaukinn umhverfiskostnaður gallabuxnanna þinna – og hvað er verið að gera í máinu0530-06-2026
8Hvers vegna veldur metan áhyggjum?0523-06-2026
9Metan: Guterres kallar eftir alþjóðlegu átaki0523-06-2026
10Óháð nefnd SÞ: börn vísvitandi skotmörk Ísraels-10725-06-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 7. Источник: unric.org.