Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan

Дата публикации: 19-06-2026 09:11:24

Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út brýna viðvörun um að yfirvofandi sókn gegn El Obeid, höfuðborg Norður-Kordofan-héraðs í Súdan, feli í sér hættu á alvarlegum alþjóðlegum glæpum. Hætta sé á að sóknin auki enn frekar mannúðarkreppu sem þegar er skelfileg. Mannréttindastjórinn, Volker Türk, gaf út viðvörun í kjölfar frétta af umtalsverðum liðssafnaði hersveita RSF (Rapid […]
The post Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Barn og móðir horfa út um glugga í Alsabaat-samfélaginu í Kassala-héraði. Ljósmynd: UNICEF/Ahmed Mohamdeen Elfatih Barn og móðir horfa út um glugga í Alsabaat-samfélaginu í Kassala-héraði. Ljósmynd: UNICEF/Ahmed Mohamdeen Elfatih

Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út brýna viðvörun um að yfirvofandi sókn gegn El Obeid, höfuðborg Norður-Kordofan-héraðs í Súdan, feli í sér hættu á alvarlegum alþjóðlegum glæpum. Hætta sé á að sóknin auki enn frekar mannúðarkreppu sem þegar er skelfileg.

Mannréttindastjórinn, Volker Türk, gaf út viðvörun í kjölfar frétta af umtalsverðum liðssafnaði hersveita RSF (Rapid Support Forces) og bandamanna þeirra í kringum borgina, samhliða aukinni notkun drónaárása og stórskotaliðsárása.

Stríð hefur geisað í Súdan síðan í apríl 2023, þegar bardagar brutust út milli súdanska hersins og RSF, sem áður voru bandamenn. Ástandið þar er nú talið versta mannúðarkreppa heims.

ólk á flótta í hinu stríðshrjáða Súdan. Fólk á flótta í hinu stríðshrjáða Súdan. Mynd UN Photo/Mona Elfateh

Samkvæmt mannúðarmálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, OCHA, hefur stríðið hrakið meira en 13 milljónir manna á flótta innanlands. Auk þess ramba milljónir til viðbótar á barmi hungursneyðar, en aðgangur að mannúðaraðstoð er verulega takmarkaður víðast hvar í landinu.

Guterres: komið í veg fyrir blóðsúthellingar

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, lýsti á fimmtudag yfir áhyggjum sínum í gegnum talsmann sinn vegna mögulegrar „yfirvofandi landárásar“.

„Allt of oft í þessum átökum hafa skýrar viðvaranir ekki leitt til samræmdra aðgerða af hálfu alþjóðasamfélagsins,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.

„Aðalframkvæmdastjórinn hvetur alla þá sem hafa áhrif á deiluaðila til að beita þeim til að koma í veg fyrir frekari blóðsúthellingar. Við megum ekki leyfa að hryllingurinn í El Fasher endurtaki sig í El Obeid.“

700.000 manns hafa hrakist á flótta vegna ofbeldis í Darfúr í Súdan. Ljósmynd: © UNICEF/Mohammed Jamal 700.000 manns hafa hrakist á flótta vegna ofbeldis í Darfúr í Súdan. Ljósmynd: © UNICEF/Mohammed Jamal Drónaárásum fjölgar

Tugir drónaárása hafa verið gerðar á El Obeid undanfarnar tvær vikur, einkum á eldsneytisstöðvar og flutningabíla, sem hafa leitt til dauða almennra borgara og hindrað aðgang að grunnþjónustu.

„Yfirvofandi sókn gegn El Obeid felur í sér hættu á alvarlegum alþjóðlegum glæpum og dýpkar skelfileg áhrif á almenna borgara sem þegar eru í erfiðri stöðu,“ sagði Türk.

„Þau ríki sem hafa áhrif hafa skyldu til að beita þeim núna til að stöðva þessa brjálsemi.“

Íbúar El Obeid hafa búið við umsátursástand  í meira en 18 mánuði.

Hætta á fjöldamorðum

Türk varaði við því að ástandið líktist aðdraganda að grimmdarverkum sem framin voru í El Fasher og Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfúr á síðasta ári og varaði við því að sama mynstur væri nú að þróast í Norður-Kordofan.

„Við höfum séð þetta leikrit áður,“ sagði hann. „Við getum ekki leyft endurtekningu á þeim grimmdarverkum sem hægt var að koma í veg fyrir og við skrásettum í El Fasher og Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfúr á síðasta ári.“

Mannréttindastjórinn hvatti einnig alla deiluaðila til að tryggja örugga för almennra borgara sem hafa ítrekað neyðst til að flýja ofbeldi í leit að grunnþjónustu.

Türk var tæpitungulaus:  „Látum þetta vera skýra viðvörun til heimsins um yfirvofandi mannréttindahamfarir og versnandi mannúðarástand,“ sagði hann. „Heimurinn fylgist með og þeir sem bera ábyrgð á brotunum verða að sæta ábyrgð.“

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar0508-07-2026
2Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum0529-06-2026
3Flóttamönnum fækkar í fyrsta skipti um árabil0715-06-2026
4Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs-5717-06-2026
5Sameinuðu þjóðirnar bregðast við jarðskjálftum í Venesúela0726-06-2026
6Óháð nefnd SÞ: börn vísvitandi skotmörk Ísraels-10725-06-2026
7Afganistan: ein stærsta flóttamannakreppu heims0708-07-2026
8Hitabylgja: neyðarástand í heilbrigðismálum á heimsvísu-5724-06-2026
9Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Þar til allir eru öruggir0516-06-2026
10Evrópa er næststærsti markaður heims fyrir kókaín0726-06-2026

Классификация: Международные. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: -5. Информативность: 7. Источник: unric.org.