Jarðskjálftar. Hjálparstofnanir eru að efla viðbrögð sín í kjölfar eyðileggjandi jarðskjálfta sem riðu yfir Venesúela og ollu víðtæku tjóni á heimilum, mikilvægum innviðum og nauðsynlegri þjónustu, sérstaklega í La Guaira og Caracas. Föstudagsmorguninn 26. júní höfðu að minnsta kosti 235 manns látist og að minnsta kosti 4.300 særst. Þessar tölur voru gefnar upp af heilbrigðisyfirvöldum […]
The post Sameinuðu þjóðirnar bregðast við jarðskjálftum í Venesúela appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Jarðskjálftar. Hjálparstofnanir eru að efla viðbrögð sín í kjölfar eyðileggjandi jarðskjálfta sem riðu yfir Venesúela og ollu víðtæku tjóni á heimilum, mikilvægum innviðum og nauðsynlegri þjónustu, sérstaklega í La Guaira og Caracas.
Föstudagsmorguninn 26. júní höfðu að minnsta kosti 235 manns látist og að minnsta kosti 4.300 særst. Þessar tölur voru gefnar upp af heilbrigðisyfirvöldum í Venesúela á meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir og embættismenn vöruðu við því að tala látinna gæti hækkað enn frekar þar sem margra var enn saknað eða þeir fastir undir rústum.
„Aðalritarinn er harmi sleginn vegna manntjóns og víðtækrar eyðileggingar af völdum hinna skelfilegu jarðskjálfta sem riðu yfir Venesúela,“ sagði talsmaður hans í yfirlýsingu.
Leitar- og björgunarsveitir sendar á vettvangSameinuðu þjóðirnar í Venesúela eru að virkja aðstoð og vinna náið með stjórnvöldum að því að styðja við viðbragðsaðgerðir. Samræmingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) samhæfir skjóta útsendingu leitar- og björgunarsveita í þéttbýli í gegnum Alþjóðlega ráðgjafahópinn um leit og björgun (INSARAG) og aðstoðar við að koma með sérfræðiþekkingu til að styðja við björgunaraðgerðir á viðkomandi svæðum.
Í yfirlýsingu lýsti Tom Fletcher, yfirmaður neyðaraðstoðar SÞ, yfir samstöðu með íbúum Venesúela og ítrekaði skuldbindingu SÞ til að styðja við viðbragðsaðgerðir á næstu dögum.
Fyrri jarðskjálftinn mældist 7,2 á Richter. Upptök hans voru nálægt borginni San Felipe, þar sem um 220.000 manns búa. Seinni skjálftinn mældist 7,5 að stærð og er sagður vera öflugasti skjálfti sem hefur riðið yfir landið í meira en 125 ár.
Rafmagns-, vatns-, fjarskipta- og samgöngukerfi hafa raskast verulega og komið hefur verið upp neyðarskýlum fyrir fjölskyldur á vergangi. Sjúkrahús starfa samkvæmt neyðaráætlunum þar sem þau sinna miklum fjölda slasaðra.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum | 0 | 5 | 29-06-2026 |
| 2 | Sameinuðu þjóðirnar vara við yfirvofandi hamförum í Súdan | -5 | 7 | 19-06-2026 |
| 3 | Alþjóðlegi flóttamannadagurinn: Þar til allir eru öruggir | 0 | 5 | 16-06-2026 |
| 4 | Heimsmarkmiðin hafa skilað árangri fyrir milljarða manna, en áskoranir eru enn til staðar | 0 | 5 | 08-07-2026 |
| 5 | FN mobiliserar bistånd i Venezuela | 0 | 7 | 26-06-2026 |
| 6 | Число жертв землетрясений в Венесуэле выросло до 3811 человек | -1 | 6 | 08-07-2026 |
| 7 | Rúanda: Frá hatursorðræðu til þjóðarmorðs | -5 | 7 | 17-06-2026 |
| 8 | Σεισμοί στη Βενεζουέλα: Ξεπέρασαν τους 1.700 οι νεκροί – Φόβοι για μακρά ανθρωπιστική κρίση | -2 | 7 | 30-06-2026 |
| 9 | Число жертв землетрясения в Венесуэле превысило 3800 человек | -1 | 5 | 08-07-2026 |
| 10 | Hitabylgja: neyðarástand í heilbrigðismálum á heimsvísu | -5 | 7 | 24-06-2026 |