Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Atvinnurekendur bera hallann af sönnunarskorti ef tímaskráningu er ábótavant

Дата публикации: 30-06-2026 00:00:00



Основное содержимое страницы с новостью.

Nýlegur dómur Landsréttar í máli nr. 276/2026 markar tímamót í réttarstöðu launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Dómurinn staðfestir að vanræki atvinnurekandi skyldu sína til að halda utan um vinnutíma starfsfólks getur það haft afgerandi áhrif á sönnunarstöðu hans ef ágreiningur rís um launakröfur eða yfirvinnu. Niðurstaðan styrkir verulega stöðu háskólamenntaðra sérfræðinga, sem oft starfa í sveigjanlegu umhverfi þar sem skil vinnu og einkalífs geta hæglega runnið saman.

Ógreidd yfirvinna og skortur á gögnum

Í umræddu máli var deilt um kröfur starfsmanns í þrotabú fyrrverandi atvinnurekanda síns vegna umtalsverðrar yfirvinnu sem hann taldi sig ekki hafa fengið greidda. Engin formleg tímaskráning lá fyrir af hálfu fyrirtækisins.

Landsréttur mat það svo að starfsmaðurinn hefði leitt nægar líkur að vinnuframlagi sínu með eigin framburði og öðrum tiltækum gögnum. Þar sem atvinnurekandinn braut gegn skyldu sinni og gat ekki lagt fram gögn sem hnekktu frásögn starfsmannsins, ákvað rétturinn að atvinnurekandinn skyldi bera hallann af sönnunarskortinum.

Sönnunarbyrðin færist yfir á vinnuveitandann

Dómurinn dregur fram þrjár mikilvægar meginreglur:

  • Sönnunarbyrðin flyst til: Ef starfsmaður sýnir fram á líkur og tilgreinir umfang yfirvinnu sinnar þarf atvinnurekandi að hnekkja þeirri staðhæfingu með óyggjandi hætti.
  • Tímaskráning er skýr lagaskylda: Samkvæmt 57. gr. a laga nr. 46/1980 ber atvinnurekendum að halda úti hlutlægu, áreiðanlegu og aðgengilegu kerfi sem skráir daglegan og vikulegan vinnutíma ásamt hvíldartíma. Starfsfólk á jafnframt rétt á að nálgast þessi gögn 12 mánuði aftur í tímann.
  • Almennar reglur vinnuréttar gilda: Landsréttur undirstrikaði að reglan byggist einnig á því að atvinnurekanda standi jafnan nær að tryggja sönnun um skipulag vinnunnar. Starfsfólk á því ekki að bera hallann af því að atvinnurekandi sinni ekki þeirri skyldu.

Þessi niðurstaða er fagnaðarefni fyrir félagsfólk aðildarfélaga BHM. Margir sérfræðingar og háskólamenntaðir starfsmenn búa við ríkan sveigjanleika, mikla ábyrgð og vinna oft ómælda vinnu utan hefðbundins vinnutíma sem ekki hefur verið haldið til haga.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Vinnudeginum lýkur aldrei hjá mörgum: er kominn tími á reglur um réttinn til að aftengjast?0525-06-2026
2Hækkun komugjalda án samráðs: BHM varar við áhrifum á forsendur kjarasamninga0507-07-2026
3Жулин: предложение о повышении возрастного ценза направлено против фигурного катания0026-11-2020
4Минспорт считает неправомерным прекращение выдачи нейтрального статуса легкоатлетам РФ0018-06-2020
5Екимов: все кандидаты в сборную России по велоспорту проходят медобследования0005-09-2020
6Названы основания для отзыва у российских легкоатлетов нейтрального статуса0018-03-2021
7ФИФА запретила «Ахмату» регистрировать новых футболистов-2316-07-2026
8Ný jafnréttislög kalla á aukið aðhald og skýra framtíðarsýn0504-06-2026
9Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir?0521-05-2026
10Госдума обсудит законопроект, запрещающий иностранцам работать гидами и экскурсоводами0022-05-2020

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: www.bhm.is.