Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins

Дата публикации: 12-05-2026 12:22:00

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
 
12. maí 2026
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsm...

Основное содержимое страницы с новостью.

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins

12. maí 2026

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á öll fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir og einhverft fólk. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var lögfestur með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

Í samningnum ýmis ákvæði, sem hafa mikla þýðingu m.t.t. þeirrar reglugerðar  sem hér er til umsagnar, s.s. í 5. gr. (Jafnrétti og bann við mismunun), 7. gr. (Fötluð börn), 12. gr. (Jöfn viðurkenning fyrir lögum), 14. gr. (Frelsi og öryggi einstaklingsins), 17. gr. (Verndun friðhelgi einstaklingsins), 22. gr. (Virðing fyrir einkalífi) og 23. gr., (Virðing fyrir heimili og fjölskyldu).

Í 3. mgr. 4. gr. samningsins (Almennar skuldbindingar) segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Í sjöundu almennu athugasemdunum (e. General Comment), sem nefnd samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks hefur sent frá sér fjallar hún um samráðsákvæði samningsins. Nálgast má þessar almennu athugasemdir nefndarinnar á hlekk að neðan.

https://docs.un.org/en/CRPD/C/GC/7

Landssamtökin Þroskahjálp taka undir það sem fram kemur í umsögn ÖBÍ – réttindasamtaka um reglugerðardrögin, dags. 22. apríl 2026 en vilja benda mennta-  og barnamálaráðuneytinu á að birting reglugerðardraga í samráðsgátt er alls ekki virk þátttaka og náið samráð í skilningi 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025. Með vísan til þess og þeirra mikilsverðu réttinda og hagsmuna fatlaðra barna og aðstandenda þeirra, sem um er fjallað í reglugerðinni sem hér er til umsagnar, óska samtökin eftir fundi með mennta- og barnamálaráðuneytinu til að fara yfir ákvæði reglugerðarinnar. 

Virðingarfyllst.

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

Katarzyna Kubiś, verkefnastjóri Þroskhjálpar í málefnum fatlaðra barna

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum0526-05-2026
2Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um barnavernd, 580. mál0513-04-2026
3Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar og Einhverfusamtakanna um drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla0014-07-2026
4Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2026-2030, 566. mál0014-04-2026
5Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030, 579. mál0514-04-2026
6Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026-2030, 593. mál0512-05-2026
7Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026-2029, 597. mál0505-05-2026
8Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um grænbók um kynjaða fjárlagagerð: Stöðumat og valkostir0524-04-2026
9Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, 577. Mál0505-05-2026
10Sameiginleg umsögn Þroskahjálpar og Geðhjálpar v/nefndar um aðbúnað barna sem vistuð voru á einkaheimilum fyrir atbeina stjórnvalda0511-06-2026

Классификация: Общество. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: www.throskahjalp.is.