Þroskahjálp kynnir Flokkahjálp, nýjan vef með stefnuskrá í málefnum fatlaðs fólks sem stjórnmálaflokkar mega stela. Á vefnum er líka greiningatól sem hjálpar stjórnmálaflokkum og kjósendum að sjá hversu inngildandi stefnuskrár framboðana eru.
Á vef Flokkahjálpar er m.a. stefnuskrá sem við hvetjum stjórnmálafólk til að stela. Við vonum að sveitastjórnarfólk nýti sér stefnuskrána sem eins konar vegvísi þegar það kemur að því að mynda meirihluta og skrifa sáttmála á komandi vikum.
Nú geta bæði stjórnmálaflokkar og kjósendur greint
hversu inngildandi stefnuskrár framboðana eru

(skjáskot af greiningatólinu)
Inni á flokkahjálp.is er greiningatól en þar má líma inn stefnuskrár og athuga hversu mikil áhersla er lögð á réttindi fatlaðs fólks.
Ekki nóg með það heldur er framboðunum boðið að stela stefnuskrá Flokkahjálpar í málefnum fatlaðs fólks sem einnig er á síðunni.
Greiningatólið hleypir vonandi skemmtilegu lífi í kosningabaráttuna og beinir sjónum að þessum mikilvæga málaflokki sem hefur ekki verið áberandi í aðdraganda kosninganna.
Við vonum að öll framboðin og kjósendur nýti sér Flokkahjálp og að málefni fatlaðs fólks verði þeim ofarlega í huga, hvort sem er í kjörklefanum eða við samningaborðin.